Flýtilyklar
Fréttir
Tekið við umsóknum Í Vaxtarsamning Austurlands

Vaxtarsamningur styður við uppbyggingu klasa og verkefna þar sem samvinna er í forgrunni. Skylyrði fyrir fjárstuðningi til verkefna er að þau tengist uppbyggingu klasa eða samstarfsnets svo sem stuðningi við stofnun tengslanets, fræðslu og þjálfun, rannsókna- og greiningarvinnu, ráðgjöf eða sameiginleg þróunar- og samstarfsverkefni sem metin eru í hverju tilfelli. Rekstrar- og fjárfestingakostnaður eru ekki styrkhæfir.
umsóknir eru afgreiddar á fundum framkvæmdaráðs sem kemur saman eftir þörfum og má því gera ráð fyrir mislöngum tíma til afgreiðslu umsókna. umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Vaxtarsamnings Austurlands.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Vaxtarsamnings Austurlands sem er til húsa hjá Þróunarfélagi Austurlands Miðvangi 2-4, 700 Egilsstöðum. Sími 471-2545 / netfang bjork@austur.is
Til baka
Heimsóknir
Samtals: 840431
Á næstunni
Leit
Veðrið
Færð á vegum (NA)
Færð á vegum (A)
Skoða veðurkort



